Jörðin hefur, í gegn um tíðina, mótast af innrænum öflum sem svo útrænu öflin reyna að brjóta niður. Þegar jarðskorpuflekarnir hreyfast með láréttum hreyfingum mótast yfirborðið t.d. með samreki en það er þegar tveir flekar reka í átt að hvor öðrum. Þegar þessi árekstur stendur yfir krumpast efnið upp og myndar stærstu fjallgarðar heims eins og Andesfjöllin, Klettafjöllin og Himalajafjöllin. Þessir fjallgarðar eru þeir hæstu í heiminum og eru Himalajafjöllin um 8000 m á hæð og 2400 m á lengd.